Skewed
Í þesssu verkefni ætla ég að hanna vörumerki/fatamerki (fashion label/brand) undir nafninu Skewed. Skewed er fatamerki sem mun í upphafi framleiða boli og peysur (street wear). Fötin eru hönnuð með það í huga að vera “kynlaus” þ.e. að þau höfði jafnt til stráka og stelpna og allra af hvaða kyni sem er. Kynlaus tíska er framtíðin eins og sjá má á þróun fatahönnunnar er að tískan er í auknum mæli að höfða til allra kynja. Mismunandi hönnun eftir kyni og öll sú kynjapælingin verður mögulega hverfandi í fatahönnun framtíðarinnar. Markhópur Skewed er því ungt fólk af öllu kyni, stétt og stöðu. Í framtíðinni mun merkið þróast áfram samhliða aukinni eftirspurn og markaðsetningu Skewed.
Eftir nokkra pælingu um það hvað merkið ætti að heita kom fljótlega nafnið Skewed í hugan. Skewed er hugtak sem er tekið úr tölfræði og þýðir þar “skekkt dreifing” sem er einskonar andstæða við “normaldreifingu”. Nánast allur mannlegur breytileiki, hvort sem það er lífaldur, hæð og þyngd, eða aðrir mælanlegir hlutir eins og greindarvísitala, persónuleikaþættir eða almenn viðhorf fellur undir normalkúrfuna og normaldreifist þannig að flest gildi raða sér í kringum meðaltalið og síðan myndar kúrfan bjöllulaga form til beggja hliða (sjá mynd nr. 31). Normalkúrfan getur hinsvegar verið jákvætt eða neikvætt skekkt og þá raðast gildin öðrum hvoru megin við meðaltalið. Er þá ekki talað um normaldreifingu heldur skekkta dreifingu gilda (sjá mynd nr. 32).

Með hugmyndafræðinni um skekkta dreifingu er ég að vísa til einhvers sem er “out of the ordinary”. Eitthvað sem er öðruvísi, ósamhverft og fellur ekki endilega alveg að norminu.
Hönnun merkisins er í samræmi við þetta. Þrýhyrningurinn er samhverfur og gefur til kynna normaldreifingu en rákirnar sem koma niður úr stöfunum eru ósamhverfar og gefa til kynna skekkju innan normsins. Til að byrja með ætla ég að gera boli og peysu með merkinu miðjusettu. Ég valdi þær litasamsetningar sem mér þóttu fallegastar ásamt hinu klassíska svart/hvíta þegar ég tók ákvörðun um það hvað skyldi prenta í þetta sinn.

Mynd nr 33. Lokaútgáfa af merkinu SKEWED.
Mér þótti mjög gaman að vinna verkefnið þar sem það snýr beint að mínu áhugasviði og því sem mig langar að starfa við í framtíðinni, þ.e. grafískri hönnun og framleiðslu á fötum. Í ljósi þess að ég er að fara í nám í Grafískri miðlun við Tækniskólann næsta haust má segja að þetta verkefni hafi verið góður undirbúningur.